~*~Ég heiti Emma Karen~*~ Fullt af nýjum myndum!


Um mig:
Ég fæddist þann 27 júní 2002 kl. 15:29 á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Þegar ég fæddist var ég með næstum svartan lubba á höfðinu og mjög dökk augu. Núna er ég glókollur með ljósblá augu. Við fæðingu var ég 51 cm og 3625 grömm. Ég á lítinn bróður sem heitir Ísak Ernir ennþá minni systir sem heitir Katla Ísold, pabba sem að heitir Kjartan og mömmu sem heitir Katrín. Við eigum heima á Hvammstanga.

Ég er dugleg og falleg stelpa sem að mamma, pabbi og litli bróðir og systir elska út af lífinu. Ég er mikil ráðskona sem að veit hvað ég vil! Það er oft erfitt að segja nei við stóru bláu augun mín. Ég er skemmtileg og kát stelpa sem að er alltaf dugleg að hjálpa mömmu minni að passa litlu systkini mín. Ég er prinsessa af guðs náð og elska allt sem er bleikt, en mamma segir stundum að ég sé bara skriðdreki í dulargervi ;)




Lilypie Next Birthday Ticker

Komið nýtt lykilorð á síðuna mína og líka hjá systkinum mínum. Sendið póst til að fá aðgang :O)



isakernir.barnaland.is

katlaisold.barnaland.is








Annað:



Til Þín Emma Karen
frá mömmu og pabba

Áður en þú varðst til þráðum við þig
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig
Áður en þú hafðir lifað eina stund
hefðum við fúslega dáið fyrir þig
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til!



Elsku mamma og pabbi

ég er með svo litlar hendur
að ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir,
farðu hægt svo ég geti fylgt þér eftir.
Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt
ég skil það ekki.
Horfðu á mig þegar ég tala við þig,
þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég er með svo viðkvæmar tilfinningar,
ekki skamma mig, leyfðu mér að gera mistök
án þess að finnast ég vera vitlaus.
Ekki búast við að myndin sem ég teikna
eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið
elskaðu mig bara fyrir að reyna.
Mundu að eg er bara barn ekki lítil fullorðin vera,
stundum skil ég ekki hvað þú segir.
Ég elska þig svo mikið, elskaðu mig fyrir að vera ég
ekki fyrir það sem ég geri






Til þín frá ma&pa

Undir þínum áhrifum

ég er ofurseldur þér og uni vel
það er annað finnst mér allt mitt hugarþel
sem ég horfi á þig sofa finn ég að
það brotið nú í lífi mínu blað

ég hef beðið nokkuð lengi eftir þér
svo ég segi það hreint alveg eins og er
og ég hugsa alla daga til þín heitt
alveg ótrúlegt hvað allt er orðið breytt

það er varla nokkur heppnari en ég
þessi tilfinning er ævintýraleg
ég er undir þínum áhrifum í dag
og verð áfram enginn vafi er um það

þú ert náttúrunnar undur fagra smíð
verður hörðu minnar strengur alla tíð
það er ekki nokkur sem að brosir eins og þú
og ég lofa gjafir lífsins fyrr og nú

þú hefur löngu sigrað mig
takmarkalaust ég trúi á þig
mitt allt er þitt og verður
um ókomin ár

ég mun elska þig allt allt fram að hinstu stund
uns ég held um síð á feðra minna fund
en að líkum hef ég tímann fyrir mér
og ég hlakka til að eyða honum með þér


Þú ert gestur nr. 13972